1Ársreikningar og skattframtöl
Betri bókarar sjá um gerð ársreikninga og skattframtöl fyrir fyrirtæki, félagasamtök, húsfélög og einstaklinga.
Við vinnum ársreikning upp úr bókhaldi félagsins og skattframtalið í framhaldi af því sem er sent rafrænt til ríkisskattstjóra.
Við tökum að okkur skyldur skoðunarmanna ársreikninga fyrir félög, enda sé skattframtalið unnið af okkur.
Lögð er áhersla á fara yfir ársreikning félagsins með eigendum /stjórnarmönnum og koma með tillögur til úrbóta og jafnframt benda á hvað gengur vel.
2Launavinnsla
Við tökum að okkur alla launavinnslu fyrir fyrirtæki og útbúum launaseðla og skilagreinar sem við sendum rafrænt til Ríkisskattstjóra, Reiknistofu bankanna og til lífeyrissjóðanna. Jafnframt sjáum við um gerð launamiða sem við sendum rafrænt til skattstjóra um hver áramót.
Í lok hvers mánaðar fáum við upplýsingar frá þér er varða vinnuframlag hvers starfsmanns, fyrirframgreiðslur o.fl. og í framhaldi reiknum við út launin. Launaseðlar eru sendir í pósti til viðkomandi starfsmanns eða á hans eigið tölvupóstfang eða til ykkar allt eftir ykkar óskum.
Skilagreinum staðgreiðslu og tryggingagjalds er skilað rafrænt til Ríkisskattstjóra og birtist krafa í heimabanka. Jafnframt er skilagreinum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga skilað rafrænt.
Í ársbyrjun sendum við með rafrænum hætti verktaka-og launþegamiða til Ríkisskattskjóra. Einnig sendum við út hlutafjármiða og ef við á bifreiðahlunninda- og greiðslumiða.
Möguleiki er fyrir fyrirtæki að láta okkur eingöngu sjá um launavinnslu því laun eru trúnaðarmál og geta því verið viðkvæm. Mörg fyrirtæki sjá sinn hag í því að úthýsa laununum.
3Bókhald og vsk skil
Við tökum að okkur alla bókhaldsvinnu fyrir stór sem smá fyrirtæki þ.e.a.s. fyrir félög, félagasamtök og einstaklinga. Á tveggja mánaða fresti sjáum við um vsk.- uppgjör sem við skilum inn rafrænt fyrir viðskiptavini okkar.
Við sjáum um færslu bókhalds, afstemmingar og útgáfu reikninga. Við færum bókhald okkar viðskiptavina í DK-hugbúnaði eða með nettengingu við bókhaldskerfi viðskiptavinar.
Við bjóðum okkar viðskiptavinum upp á að sækja og senda bókhaldsgögnin allt eftir samkomulagi.
4Kærur
Við kærum úrskurði/álagningu skattstjóra ef tilefni er til þess. Jafnframt svörum við öllum fyrirspurnum skattstjóra fyrir viðskiptavini okkar.
5Stofnun félaga
Við sjáum um stofnun félaga þ.e.a.s. alla skjalagerð varðandi stofnun á ehf., hf., slf. Jafnfamt tökum við að okkur ýmsa aðra skjalagerð/samninga s.s. að útbúa skuldabréf, gerð leigusamninga,kaupsamninga annarra eigna en fasteigna, ráðningasamninga og gerð ýmissa annarra viðskiptabréfa.
6Rekstrarráðgjöf & önnur fjárhagsaðstoð
Við sjáum um alla almenna ráðgjöf fyrir fyrirtæki vegna rekstrar og bókhalds. Jafnfamt sjáum við um að leysa úr hvers kyns fjárhagsvandamálum hjá einskaklingum sem eru mjög skuldum vafnir. Við kryfjum fjármál þín til mergjar og setjum upp greiðsluáætlun fyrir þig svo þú komist út úr skuldunum. Jafnfamt reynum við að semja við lánadrottna um lækkun á skuld og/eða niðurfellingu vaxta.